Lífið

Bieber lætur bíða eftir sér

Bieber lætur bíða eftir sér.
Bieber lætur bíða eftir sér.
Justin Bieber lét 13 þúsund aðdáendur sína bíða í þrjá klukkutíma áður en hann steig á svið á tónleikum sem hann hélt í Wells Fargo í Iowa í Bandaríkjunum í gær. Tónleikarnir áttu að hefjast klukkan sjö en Bieber steig ekki á svið fyrr en tíu.

Tónleikahaldarar segja að formlega hafi tónleikarnir ekki átt að hefjast fyrr en hálf tíu og því hafi Bieber ekki verið nema um hálftíma of seinn. Áhorfendur voru margir hverjir ekki á sama máli og létu heyra í sér á meðan biðinni stóð.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem tónleikar Biebers hefjast seinna en auglýst var. Poppstjarnan unga lét meðal annars aðdáendur í London, Þýskalandi og Dúbæ bíða eftir sér þegar hann hélt tónleika þar fyrir skömmu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.