Fótbolti

Mario Gomez til Fiorentina

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mario Gomez á æfingu með Bayern München.
Mario Gomez á æfingu með Bayern München. Nordicphotos/Getty
Framherjinn Mario Gomez leikur með Fiorentina í efstu deild ítölsku knattspyrnunnar á næstu leiktíð. Ítalska félagið og Bayern München hafa komist að samkomulagi um kaupverð kappans.

Karl Heinz-Rummenigge sagði í samtali við heimasíðu Bæjara að Mario Gomez hefði óskað eftir því að fá að yfirgefa Evrópumeistarana. Framherjinn var notaður sem varaskeifa fyrir Mario Mandzukic stóran hluta síðustu leiktíðar.

Gomez varð dýrasti leikmaðurinn í efstu deild þýsku knattspyrnunnar fyrir fjórum árum þegar hann var keyptur til Bæjara frá Stuttgart.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×