Heiður að taka við af Heynckes 24. júní 2013 16:30 Pep er mættur í klefann hjá Bayern.
Spánverjinn Pep Guardiola var í dag formlega kynntur til leiks sem sem þjálfari Bayern München. Hann tekur við starfinu af Jupp Heynckes sem kvaddi sem þrefaldur meistari. Guardiola sagði á blaðamannafundi í dag að hann þyrfti að aðlaga sig að félaginu en ekki öfugt. Hann sagði einnig að leikmennirnir væru mikilvægari en þjálfarinn. Margir bíða spenntir eftir því að sjá boltann sem hann mun láta Bayern spila. Pep segist ekki ætla að láta Bayern spila sama bolta og Barcelona gerði undir hans stjórn. "Leikmenn Barcelona hafa aðra kosti en leikmenn Bayern. Ég verð því að aðlagast leikmönnunum og vinna með þeirra styrkleika. Fótboltinn er leikmannanna en ekki þjálfarans. Stuðningsmenn mæta til þess að horfa á leikmennina en ekki þjálfarann," sagði Guardiola. Það verða gerðar miklar væntingar til Guardiola og hann gerir sér grein fyrir því. "Bayern vann allt sem hægt er að vinna síðasta vetur. Það verða því eðlilega miklar væntingar. Eina sem ég get gert er að reyna að halda liðinu á toppnum. Ég mun vonandi ræða við Heynckes á næstunni en hans skoðanir skipta mig miklu máli. "Ég ber mikla virðingu fyrir Heynckes og því sem hann hefur afrekað sem þjálfari allan sinn feril. Það er heiður að taka við af honum." Guardiola vildi lítið ræða leikmannamálin en sagðist reikna með litlum breytingum.
Þýski boltinn Mest lesið Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Ótrúlegasta stoðsending tímabilsins strax í nóvember Körfubolti Russell á ráspól í fyrramálið Formúla 1 Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Enski boltinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Fótbolti Hefur Ben Simmons náð botninum? Körfubolti Andy Murray þjálfar erkióvininn Sport Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Fótbolti Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Íslenski boltinn Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Fótbolti Fleiri fréttir Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Fjórtán ára á æfingum með Arsenal Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Fær konuna til að eiga við draugana og ætlar ekki að pissa í hornin Albert kemur til greina sem sá besti á Ítalíu Amorim fullur sjálfstrausts á fyrsta blaðamannafundinum Meistararnir og Skytturnar missa út lykilmenn Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Annað áfall fyrir Hörð sem fór til sama læknis og Rodri Ísland mætir Kósovó í sérstöku umspili Írarnir hans Heimis mæta Búlgörum Lewandowski fékk ekki að fara til Man. Utd Sjá meira