Menning

Litrík fjölskyldusýning í Hofi

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Dansararnir leggja sig alla fram í Hnotubrjótnum.
Dansararnir leggja sig alla fram í Hnotubrjótnum. Mynd/Þórgnýr Dýrfjörð
Hið klassíska jólaævintýri Hnotubrjóturinn verður sýnt í menningarhúsinu Hofi á Akureyri á laugardaginn. Þrjú hundruð og fimmtíu dansarar á öllum aldri dansa þá við kröftugan undirleik Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og búast má við litríkri fjölskyldusýningu að sögn Brynju Harðardóttur, framkvæmdastjóra sveitarinnar. Hún segir sýninguna setta upp í samstarfi hljómsveitarinnar og dansskólans Point Dansstúdíós en stofnandi þess, Sigyn Blöndal, er jafnframt handritshöfundur sýningarinnar. Hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson.



„Þetta er í fyrsta sinn sem hljómsveitin heldur danssýningu og ríkir mikil ánægja með þessa nýbreytni en möguleikar sveitarinnar hafa vaxið jafnt og þétt síðan hún flutti í Hof,“ segir Brynja. Hún segir dansnemendur hafa æft af kappi síðan í haust og að mikil spenna ríki bæði meðal þeirra og annarra sem komi að sýningunni sem eru hátt í fimm hundruð manns. „Samhliða því sem sagan er sögð í gegnum dans og tónlist verður sviðsmyndin einstaklega lifandi, þökk sé hönnuðunum Heiðari Má Björnssyni og Frey Vilhjálmssyni,“ lýsir Brynja. Hún tekur fram að tvær sýningar séu fyrirhugaðar sama daginn og uppselt sé á þá fyrri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.