Menning

Konur aðeins 9% leikstjóra

Leikstjóri hinnar vinsælu Zero Dark thirty er Kathryn Bigelow.
Leikstjóri hinnar vinsælu Zero Dark thirty er Kathryn Bigelow.
Aðeins 9% af þeim leikstjórum sem áttu 250 tekjuhæstu bíómyndirnar í Hollywood árið 2012 voru konur. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem Rannsóknarmiðstöð kvenna í sjónvarpi og kvikmyndum í Bandaríkjunum gerði.

Þrátt fyrir þessa lágu prósentutölu jókst fjöldi kvenna um 4% frá árinu á undan. Ef teknir eru saman allir leikstjórar, framleiðendur, handritshöfundar, kvikmyndatökumenn og klipparar var fjöldi kvenna 18%.

Í könnuninni kom einnig fram að konur væru líklegri til að vinna við heimildarmyndir, dramamyndir og teiknimyndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.