Ísland eina landið þar sem kynferðisbrot gegn börnum eru ófyrnanleg 10. janúar 2013 17:37 „
Þetta mál sem nú tröllríður samfélaginu undirstrikar það hversu mikilvægt það var að ná lagabreytingum í gegn um afnám fyrningar í kynferðisbrotum gegn börnum," segir Ágúst Ólafur Ágústsson, fyrrverandi þingmaður og formaður allsherjarnefndar. Um fátt annað er rætt þessa dagana en endurtekin kynferðisbrot Karls Vignis Þorsteinssonar gegn börnum. Hann hefur viðurkennt að hafa brotið á hátt í fimmtíu börnum á síðustu fimm áratugum. Mörg brotanna eru nú fyrnd. Tillagan var fyrsta þingmál Ágústs Ólafs en hún var lögð fram árið 2003. „Fjórar tilraunir þurfti til en það var síðan árið 2007 sem það tókst að ná fram lagabreytingum. Núna eru alvarlegustu kynferðisbrotin gegn börnum ófyrnanleg." „Mitt upprunalega þingmál laut að því að gera flest öll kynferðisbrot gegn börnum ófyrnanleg. En það náðist ekki í gegnum þingið. Eins og flestir muna þá var andstaða við þessa breytingu á sínum tíma." Ágúst Ólafur segir að mótrökin hafi annars verið sú að breytingarnar væru stílbrot á lögunum þar sem flest brot fyrnast. Hins vegar var honum bent á að þessi brot fyrnast í nær öllum nágrannalöndum okkar. „En ég talaði fyrir því að sérstaða þessara brota væri slík að hún kallaði beinlínis á það að þau væru ófyrnanleg." „Ísland er, eftir því sem ég best veit, eina landið í heiminum sem hefur kynferðisbrot gegn börnum ófyrnanleg." Ágúst Ólafur var gestur í útvarpsþættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. Hægt er að hlusta á viðtalið hér fyrir ofan.
Mest lesið Tjaldstæðadólgur hótar að sverta staðinn á netinu Innlent „Ef þessi maður kemst út úr fangelsi mun hann drepa barnið mitt“ Innlent Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Innlent Gámur fluttur án leyfis eiganda og öllu stolið úr honum Innlent Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf Innlent Vaknaði með tíu ósvöruð símtöl og frétti svo af uppsögninni Innlent Kourani sjái ekki eftir neinu og eigi skilið sex til átta ár í fangelsi Innlent Ökumaðurinn á lífi en töluvert slasaður Innlent Ein leið í og úr hverfinu dragi úr öryggi íbúa Innlent Hvetur fólk til að skipta sér meira af öðrum Innlent Fleiri fréttir Meira um ofbeldi og hótanir og starfsfólk upplifir óöryggi í vinnunni Glæsilegt gullregn og hlynur í Hveragerði Mikil og þétt umferð í dag Eldsneyti komið aftur í Staðarskála Aukið ofbeldi gegen heilbrigðisstarfsfólki og kosningar í Bretlandi Virðist ekki hafa dregið úr kvikuinnstreymi í Svartsengi Maðurinn fundinn en ekki hægt að segja til um ástand hans Henti barnungum „óþekkum“ sonum sínum í gólfið Ekkert eldsneyti í Staðarskála Ekki spurst til mannsins síðan snemma í gær Fjöldi erlendra meintra gerenda nær tvöfaldaðist á tveimur árum Kristrún fagnaði með Starmer: „Mikill innblástur fyrir okkur“ Segir Miðflokkinn vilja skreyta sig stolnum fjöðrum Taka fyrir nauðgun á táningsstúlku vegna vinnubragða Landsréttar Skjálfti suðvestur af Reykjanestá Vill gera smokkinn sexí aftur Tjaldstæðadólgur hótar að sverta staðinn á netinu Dæmdar tæplega fimmtíu milljónir fjórtán árum eftir handtökuna Ökumaðurinn á lífi en töluvert slasaður Meirihluti sem vill þjóðaratkvæðagreiðslu ekki svo mikill Hafa áhyggjur af göngumanni á Skálafellsjökli Tekið á símanotkun strætóbílstjóra með hörku Svindlsíður herja á landsmótsgesti Sagði hvorki unnustu sína né börn hennar verðskulda líf Hvetur fólk til að skipta sér meira af öðrum Skjálfta varð vart á höfuðborgarsvæðinu Allsgáður en ók niður ljósastaur Stöðug fjölgun tilfella þar sem eggvopnum er beitt Tvö þúsund skora á Guðrúnu að hætta við brottvísunina Skilur ekki hægagang dómsmálaráðuneytisins Sjá meira