Menning

Íslendingur einn af tólf í stjörnuljósmyndakeppni

Haukur Viðar Alfreðsson skrifar
Halastjörnuna má sjá við sjóndeildarhringinn hægra megin á myndinni.
Halastjörnuna má sjá við sjóndeildarhringinn hægra megin á myndinni. mynd/ingólfur bjargmundsson
Íslenski ljósmyndarinn Ingólfur Bjargmundsson er meðal tólf efstu keppenda í Astronomy Photographer of the Year-keppninni sem fram fer ár hvert. Framlag Ingólfs er ljósmynd af halastjörnu sem tekin var á Reykjanesi í fyrra.

„Þetta var nú eiginlega hálfgert slys,“ segir Álftnesingurinn Ingólfur um myndina, en hann var að eigin sögn ekki sérstaklega að eltast við PANSTARRS-halastjörnuna sem sést á myndinni.

Sérstök dómnefnd sem skipuð er geimvísindamönnum, rithöfundum og ljósmyndurum mun velja sigurvegara úr þeim tólf myndum sem bárust og þóttu bestar, og verður vinningsmyndin tilkynnt þann 18. september.

Verður hún höfð til sýnis í Royal Observatory-safninu í Greenwich en Ingólfur segist ekki vita hve hátt vinningsféð sé, eða hvort það sé yfir höfuð vinningsfé. „Það kemur bara í ljós,“ segir Ingólfur.

Sjá má allar myndirnar tólf á vefsíðu The Telegraph.

Ein myndanna í keppninni er tekin við Mývatn.mynd/James Woodend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×