Menning

Hryllingsmynd Barða á toppnum

Kvikmyndin Would You Rather, sem tónlistamaðurinn Barði Jóhannsson, oftast kenndur við Bang Gang, samdi tónlistina í ásamt Daniel Hunt úr hljómsveitinni Ladytron, virðist hitta í mark.

Myndin fór í toppsæti lista iTunes í Bandaríkjunum yfir mest seldu hryllingsmyndirnar þessa helgi og í sæti númer 32 á heildarlistanum yfir allar kvikmyndir.

Tónlistin úr myndinni kemur út á plötu á næstu mánuðum. Barði hefur einnig samið tónlist við hryllingsmyndina Häxan, sem og íslensku myndirnar Strákarnir okkar og Reykjavík Rotterdam.

Would You Rather er leikstýrt af David Guy Levy og í aðalhlutverkum eru Brittany Snow og Logan Miller.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×