Götze vildi spila fyrir Guardiola Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 24. apríl 2013 16:45 Nordic Photos / Getty Images
Ástæða þess að Mario Götze ákvað að taka tilboði Bayern München var fyrst og fremst að spila undir stjórn Pep Guardiola. Þetta fullyrða þýskir fjölmiðlar í dag en Guardiola mun taka við Bayern nú í sumar. Götze er tvítugur leikmaður Dortmund sem hefur lengi verið talinn einn allra efnilegasti leikmaður Evrópu. Guardiola setti fram óskalista um leikmenn sem hann vildi fá og efstur á honum var Götze. Næstu nöfn á listanum voru Brasilíumaðurinn Neymar og svo Julian Draxler, nítján ára leikmaður Schalke. Í janúar síðastliðnum sagði Götze að hann myndi ekki fara frá Dortmund fyrr en eftir tímabilið 2014. En það breyttist þegar að Bayern kom til sögunnar. Dortmund neyddist til að taka tilboði Bayern sem bauð tilgreinda lágmarksupphæð samkvæmt samningi Götze. Leikmaðurinn sjálfur tók svo tilboði Bayern sem er sagt borga honum allt að 12,5 milljónir evra - 1,9 milljarða króan - í laun á ári. Götze mun þegar hafa skrifað undir fjögurra ára samning við Bayern. Bayern greiðir Dortmund 37 milljónir evra (5,6 milljarða) en Götze var samningsbundinn síðarnefnda félaginu til 2016.
Þýski boltinn Mest lesið Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Óvænt úrslit á HM í pílu í kvöld Sport Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark Fótbolti Rashford á lausu yfir jólin Fótbolti Salah sló þrjú met í dag Fótbolti Charlie Woods fór holu í höggi í fyrsta sinn Golf Wagner með slitið krossband og úr leik út tímabilið Körfubolti Dagskráin í dag: Það er pílan Sport „Við vorum taugaóstyrkir“ Fótbolti Cullen stormaði út af blaðamannafundi Sport Fleiri fréttir Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Útsalah á mörkum í Lundúnum Martröð hjá Manchester United í leikhúsi draumanna Drottning Lengjudeildarinnar ætlar að vera með Fram í Bestu Öruggt hjá Real Madrid gegn Sevilla Liverpool liðið ferðast mest yfir jólin Fjórar knattspyrnukonur handteknar Jackson komst upp fyrir Eið Smára Heiður að vera keypt á metfé frá Val: „Stórt og gott skref“ Sara Björk á skotskónum í Sádi-Arabíu Skallaði þjálfara andstæðinganna eftir leik Endar Rashford í Sádí-Arabíu? Saka yfirgaf Selhurst Park á hækjum Bellingham tryggði Sunderland sigurinn Atletico rændi sigrinum í blálokin Juric tekinn við Southampton Arsenal valtaði yfir Crystal Palace Isak með þrennu í stórsigri Newcastle Haaland: Ég hef ekki verið nógu góður Gumma komin heim eftir átta ára fjarveru Guardiola: Við erum í vandræðum með að skora Lengi getur vont versnað hjá Man. City Hólmbert og félagar náðu ekki að vinna fallslaginn Nú verður hægt að vinna Beckenbauer bikarinn Sjá meira