Fótbolti

Jóhann Berg: Fallegasta þrenna sem ég hef séð

Henry Birgir Gunnarsson í Bern skrifar
Hetja Íslands í kvöld var Jóhann Berg Guðmundsson. Hann skoraði einna fallegustu þrennu í manna minnum og þriðja markið kom í uppbótartíma í 4-4 jafnteflinu gegn Sviss.

"Það var auðvitað frábært að skora þrjú mörk í svona leik. Við vorum 4-1 undir og allir búnir að afskrifa okkur. Þá var frábært að sýna góðan karakter og koma til baka," sagði Jóhann Berg eftir leik.

"Ég verð vonandi í byrjunarliðinu í næsta leik. Það er gaman að hjálpa liðinu. Ég spilaði vel síðast og aftur í kvöld. Vonandi verður framhald á þessu.

"Þrennan var stórglæsileg og ég hef ekki séð fallegri þrennu þó svo ég segi sjálfur frá."

Jóhann þakkar góðum leik að hann sé að spila mikið í Hollandi. Það er langt síðan hann skoraði þrennu.

"Það var frábært að sjá á eftir boltanum í netið. Það var góð tilfinning að geta fagnað með liðinu."

Viðtal við Jóhann má sjá hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×