Menning

Er í nostalgíukasti

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
 Þórunn kemur víða við á tónleikunum en grísku þjóðlögin verða í öndvegi.
Þórunn kemur víða við á tónleikunum en grísku þjóðlögin verða í öndvegi. Fréttablaðið/Stefán
Ég bjó náttúrulega úti í Grikklandi þegar ég var tólf ára pæja og kynntist þá grískri tónlist,“ segir Þórunn Lárusdóttir leik- og söngkona, um ástæðu þess að hún ætlar að syngja grísk þjóðlög á Café Haiti annað kvöld. „Þetta er alveg dásamleg tónlist og ég er í nostalgíukasti í hvert sinn sem ég heyri hana.“



Þórunn mun þó ekki einvörðungu halda sig við grísku tónlistina á tónleikunum. „Það verða fleiri heimshorn þarna. Lög á spænsku, þýsku og frönsku að ógleymdri íslenskunni. Þannig að við ætlum að vera dálítið alþjóðleg og þetta verður örugglega rosalega gaman.“



Með Þórunni leika Ásgeir Ásgeirsson á bouzouki, Haukur Gröndal á klarínett, Þorgrímur Jónsson á bassa, Erik Qvick á slagverk og Kristófer Rodriguez Svönuson á slagverk. Tónleikarnir fara fram á Café Haítí og hefjast klukkan 21.30.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.