Tankurinn kláraðist í miðjum leik Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 4. febrúar 2013 07:30 Rúnar var orðinn fastamaður í íslenska landsliðinu þegar hann meiddist. Hér er hann með Ásgeiri Erni Hallgrímssyni. Mynd/Stefán
Rúnar Kárason er kominn aftur af stað á nýjan leik, sjö mánuðum eftir að hann gekkst undir aðgerð vegna slitins krossbands í hné. Meiðslin áttu sér stað á landsliðsæfingu í júní síðastliðnum en hann var þá nýgenginn til liðs við þýska úrvalsdeildarfélagið Grosswallstadt. Æfingaleikur liðsins gegn Erlangen í gær var því fyrsti leikur Rúnars með „nýja" félaginu sínu en hann hefur spilað sem atvinnumaður í Þýskalandi síðan 2009. „Þetta gekk bara ágætlega," sagði Rúnar í samtali við Fréttablaðið í gær. „Ég var búinn að æfa alla vikuna en mátti reyndar ekki fara í neinn „kontakt" þá. Liðsfélaganir máttu ekki brjóta á mér," sagði Rúnar sem sagði það því hafa verið viðbrigði að spila alvöru handbolta á ný eftir langa endurhæfingu. „Það er hægt að vera duglegur í lyftingasalnum og á brettinu en þegar maður byrjar svo að spila á ný þarf að byggja upp allt öðruvísi þol. Tankurinn var því orðinn algerlega tómur hjá mér þegar 20 mínútur voru eftir af leiknum," sagði Rúnar. Grosswallstadt mætir Wetzlar á föstudaginn í fyrsta deildarleik sínum eftir HM-frí og segir Rúnar að það hafi alltaf verið stefnt að því að spila þann leik. „Sem betur fer hafa ekki komið nein bakslög hingað til og tel ég mig vera nokkuð heppinn með að geta spilað sjö mánuðum eftir aðgerð," sagði Rúnar og bætir við að þessi tími hafi ekki verið sá skemmtilegasti á handboltaferlinum. „Ég myndi ekki óska mínum verstu óvinum að slíta krossband í hné – ekki að ég eigi neina óvini," sagði hann í léttum dúr. „Það er að mörgu að huga í svona bataferli og maður þarf að halda vel á spilunum næstu mánuðina til að koma líkamanum aftur í fyrra horf." Fram undan er mikil fallbarátta hjá Grosswallstadt en liðið er í næstneðsta sæti þýsku deildarinnar með fimm stig.
Handbolti Mest lesið Bein útsending: Fimm eftir í morgunsárið Sport Arnar Gunnlaugsson í banni í úrslitaleiknum Fótbolti „Hefði látið Elías Inga blása og er ekki viss um að hann hefði fengið keyra heim“ Íslenski boltinn Stærsta lið Noregs í þrot Handbolti „Dæmið okkur eftir eftir næstu sjö leiki“ Fótbolti Rakel María endaði upp á spítala: „Ég á bara ótrúlega erfitt“ Sport FIFA setur Viðar Örn í sex mánaða bann Fótbolti Körfuboltakvöld: Áhyggjur af Álftanesi Körfubolti „Ég trúi þessu ekki ennþá“ Íslenski boltinn Stjarna Leverkusen á spítala eftir árekstur við vörubíl Fótbolti Fleiri fréttir Stærsta lið Noregs í þrot Uppgjörið: Haukar - Cocks 35-26 | Haukar fara með gott veganesti til Finnlands 23 íslensk mörk þegar Magdeburg vann Leipzig Strákarnir hans Gumma Gumm með fimmta sigurinn í röð Dana Björg markahæst í sigurleik Komin aftur á völlinn þremur mánuðum eftir barnsburð Elvar skoraði sex þegar Melsungen fór á toppinn Grótta náði í stig gegn meisturum FH Ýmir dýrmætur í fyrsta sigrinum Fjölnir nálægt því sem Porto tókst ekki en Valskonur á siglingu Guðjón og Elliði fögnuðu áfram eftir Íslandsför Sjáðu ótrúlegt mark Sigvalda í Meistaradeildinni KA og ÍR fögnuðu eftir spennu Orri magnaður í frábærum sigri Kristján rifbeinsbrotnaði: „Fannst þetta klárt rautt spjald“ Aron aftur til Veszprém eftir stormasaman viðskilnað Íslensk upprisa dugði ekki til og Bjarki fagnaði gegn löndum sínum Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 38-27 | Mosfellingar á toppinn með stórsigri Sandra í landsliðinu þremur mánuðum eftir barnsburð Aron Dagur í Kópavoginn Allt jafnt á Ásvöllum Selfoss upp fyrir Stjörnuna Slæmt gengi Magdeburg í Evrópu heldur áfram Óaðfinnanleg Elín Klara skaut Haukum upp í þriðja sætið Uppgjörið: Fram - ÍBV 29-20 | Öruggur heimasigur Landsliðshetjan í áfalli: Ég skelf öll „Stór partur af mér sem persónu“ „Við vorum bara niðurlægðir“ „Æðislegt að sjá svona marga Íslendinga sem halda með okkur“ Þorsteinn Leó: Ég sá að stúkan var hálf blá Sjá meira