Pistorius ákærður fyrir morð Guðsteinn Bjarnason skrifar 15. febrúar 2013 06:00 Oscar Pistorius leiddur út af heimili sínu í lögreglufylgd. Nordicphotos/AFP
Suðurafríski hlaupakappinn Oscar Pistorius var handtekinn í fyrrinótt og síðar ákærður fyrir að hafa orðið kærustu sinni að bana. Kærasta hans, fyrirsætan Reeva Steenkamp, fannst látin á heimili hans í höfuðborginni Pretoríu, með fjögur skotsár á höfði og handlegg. Þetta gerðist um fjögurleytið að nóttu til í afgirtu hverfi auðmanna, þar sem Pistorius býr í glæsihúsi. Í suðurafrískum fjölmiðlum var fullyrt að Pistorius hefði haldið að hún væri innbrotsþjófur. Nokkrir fjölmiðlar leiddu líkur að því að hún hefði ætlað að koma honum á óvart á Valentínusardaginn. Lögreglan vildi þó ekki staðfesta slíkar vangaveltur. Lögreglan staðfesti hins vegar að hún hefði áður þurft að skipta sér af atvikum á heimili Pistoriusar. Þá hefur lögreglan rætt við vitni, bæði nágranna og aðra sem „heyrðu hvað gerðist fyrr um kvöldið og þegar skotin riðu af“ að því er haft er eftir Denise Beukes, talskonu lögreglunnar. Pistorius er einn þekktasti íþróttamaður Suður-Afríku. Hann keppti á Ólympíuleikunum í London í sumar og varð þá fyrstur til að taka þátt í hlaupaíþróttum á Ólympíuleikum með tvo gervifætur.
Mest lesið Menn hér á landi verið tengdir hryðjuverkasamtökum Innlent Fjölga rýmum á öryggisgeðdeild og ný stofnun í startholunum Innlent Höfðar mál gegn Íslandi vegna úrgangsmála Innlent Fluttur á slysadeild eftir líkamsárás Innlent Enn stefnt á uppbyggingu þótt talan hundrað sé ekki heilög Innlent Bilun í stofnneti Ljósleiðarans Innlent „Ekki kynnst alvöru málþófi ef þau telja þetta vera mikið málþóf“ Innlent Landlæknir varar við sýningu Adolescence-þáttanna Innlent Adolescence gott samfélagsinnlegg en ekki góð forvörn Innlent Hryssurnar lamdar, ýtt í þær með prikum og þær beittar afli Innlent Fleiri fréttir Kynntu „sterka stjórn sem er fær um aðgerðir“ Kynna nýja ríkisstjórn Þýskalands Hátt í hundrað látnir eftir að þak skemmtistaðar féll Máttu ekki banna fréttamenn AP Erjur í innsta hring Trump fyrir opnum tjöldum Leggur á 104 prósenta tollgjöld á Kína Segjast hafa handsamað Kínverja sem börðust með Rússum Staðfestir veru úkraínskra hermanna í Belgorod Saka Bandaríkin um kúgun og svara fyrir sig Belgískum prins synjað um félagslegar bætur Mikilvægur fundur með Íran framundan Aflýstu blaðamannafundi skyndilega Eini eftirlifandinn lýsir pyntingum og barsmíðum ísraelskra hermanna Kanye stal Ku Klux Klan-myndinni úr Aftenposten Þrjú látin: Heyrðu öskur þegar hringt var í neyðarlínu Ísraelsher viðurkennir rangfærslur eftir birtingu myndefnis Þúsundir mótmæltu Trump á 1.200 mótmælum Vill tollalaus viðskipti við Evrópu „Þetta verður ekki auðvelt“ Handtekinn fyrir að fara á forboðna eyju „En það sem ég var aldrei, var nauðgari“ Tollahækkanir Trump taka gildi TikTok hólpið í bili Rak sex eftir fund með umdeildum samsæringi Russell Brand ákærður fyrir nauðganir og kynferðisbrot Sendi Dönum tóninn Saka Pútín um að draga lappirnar Rannsaka dráp á sjúkraliðum en neita að þeir hafi verið teknir af lífi Forseti Suður-Kóreu leystur frá embætti Rannsaka góðgerðarsamtök sem Harrý stofnaði Sjá meira