Menning

Pörupiltarnir snúa aftur með þrjár aukasýningar

Pörupiltar verða með þrjár aukasýningar í mars.
Pörupiltar verða með þrjár aukasýningar í mars.
Leikhópurinn Pörupiltar verður með þrjár aukasýningar á uppistandinu Homo erectus í Þjóðleikhúskjallaranum í mars. Uppistandið var sýnt síðastliðinn vetur við góðar undirtektir gagnrýnenda og áhorfenda.

Meðlimir Pörupilta eru Alexía Björg Jóhannesdóttir, María Pálsdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir. Þær hafa oft verið ráðnar til að skemmta á árshátíðum og þorrablótum fyrirtækja og stundum verið nærri reknar úr eigin sýningu því enginn þekkti þær í karlgervunum og fólk hélt að þær væru að ræna úr fatahenginu.

Fyrsta sýning Pörupilta í Þjóðleikhúskjallaranum verður 2. mars.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.