Menning

Þrír með samning fyrir útskrift

Sara McMahon skrifar
Arnar Dan og Elma Stefanía. Mynd/Valli
Arnar Dan og Elma Stefanía. Mynd/Valli
"Þetta er auðvitað óskastaða að vera í. Ég er mjög spennt fyrir því að byrja hjá Þjóðleikhúsinu og er viss um að þetta verði mikið ævintýri," segir Elma Stefanía Ágústsdóttir, leiklistanemi við Listaháskóla Íslands. Hún er ein þriggja nemenda sem útskrifast af leikarabraut leiklistar- og dansdeildar LHÍ í vor sem hafa þegar gert samning við annað stóru leikhúsanna. Arnar Dan Kristjánsson og Hildur Berglind Arndal gerðu samning við Borgarleikhúsið og munu hefja þar störf í lok sumars.

Elma Stefanía hlakkar mikið til að takast á við þau verkefni sem bíða hennar hjá Þjóðleikhúsinu. "Ég er komin með eitt verkefni en ég veit ekki hversu mikið ég má segja um það. Ég leik aðalhlutverkið í sýningu sem sett verður upp í Kassanum í haust. Fyrsti samlestur í því verður núna í lok maí," útskýrir hún.

Arnar Dan segist einnig spenntur fyrir því að hefja störf hjá Borgarleikhúsinu og segir samninginn mikla viðurkenningu. "Það er alltaf gaman að vita að maður hafi staðið sig vel. Ég er þó sannfærður um að allir í bekknum eigi eftir að verða mikið í sviðsljósinu í framtíðinni því þetta er allt ofboðslega hæfileikaríkt fólk," segir Arnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.