Menning

Ljúfur háskólanemi leikur handrukkara

Freyr Bjarnason skrifar
„Þetta var magnaðasta reynsla sem ég hef upplifað. Að vera á „setti“ með svona frábæru fólki og upplifa þetta kvikmyndastúss var algjört æði,“ segir Kristján Hafþórsson.

Hann leikur handrukkarann og fíkniefnasalann Hödda í kvikmyndinni Falskur fugl sem er komin í bíó. Hlutverkið er hans fyrsta á hvíta tjaldinu og þykir hann standa sig með miklum sóma sem einn af vinum aðalpersónunnar Arnaldar.

„Það er svo fyndið að ég hafi verið að leika þennan gæja því ég sjálfur drekk hvorki né reyki. Það var dálítið skemmtilegt að fara alveg hinum megin á kúrfuna. Ég er mesti ljúflingur í alvörunni.“

Kristján, sem er 21 árs, er í heimspekinámi í Háskóla Íslands og spilar einnig fótbolta með Knattspyrnufélagi Hlíðarenda, sem er í fjórðu deild. Undanfarin ár hefur hann jafnframt haldið fyrirlestra í grunnskólum og menntaskólum.

„Ég hvet krakka til að sleppa því að drekka en ef þeir kjósa að drekka bendi ég þeim á að gera það skynsamlega og aðeins ef þeir hafa aldur til og þroska. Annars er ég aðallega að segja krökkunum að vera þeir sjálfir, njóta sín og hafa það gott í lífinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×