
Auðlindanýting eða skapandi greinar
Sameiginlega stefið er að þetta fari engan veginn saman þ.e. að ekki sé hægt að reka álver og hönnunarstofu með góðu móti á sama tíma. Þá er líka gjarnan fullyrt að skapandi greinar skapi í raun engar tekjur og séu því óþarfa punt.
Nú er ég ekki hagfræðingur og sú einfalda mynd sem ég hef af hagkerfinu hér er mögulega óraunhæf. Að mínu mati er þetta ekki svo flókið og snýst aðallega um að umsýslu verðmæta megi skipta í tvennt þ.e. framleiðslu og veltu, sem eru svo aftur samofin fyrirbæri.
Einfalt dæmi: Tvær eyjar
Eyja A og eyja B hafa sömu íbúasamsetningu. Á hvorri eyju fyrir sig búa þrjár manneskjur: sjómaður, ljóðskáld og skákkennari. Eitt árið veiddu sjómennirnir hvor sinn fiskinn sem þeir seldu til útlanda og nú eru til 100 alvöru krónur, bæði á eyju A og B. Eftir eitt ár er fjárhagsleg staða eyjanna borin saman og niðurstaðan er sú sama, plús 100 kr.
Þetta skilja allir en þetta segir hins vegar ekki alla söguna því að á eyju A setti sjómaðurinn 100 kr. beint í baukinn en á eyju B keypti sjómaðurinn skákkennslu. Í kjölfarið borgaði skákkennarinn svo listamanninum laun fyrir að semja gríðarlega fallegan óð um töfra skáklistarinnar.
Staða eyjanna er því í raun ekki sú sama því á eyju B nýtti sjómaðurinn skapandi greinar til að velta krónunum áfram og kaupa sér í leiðinni nýja færni. Krónan valt áfram og eftir árið höfðu allir á eyju B 100 kr. í árslaun í samanburði við eyju A þar sem tveir þriðju íbúa voru algerlega tekjulausir. Staða eyjanna eftir árið er því gerólík, á eyju A voru heildartekjur íbúa 100 kr. og lítið að frétta. Á eyju B voru heildartekjur íbúa hins vegar 300 kr. og sjómaðurinn þar öruggur með að máta sjómann A í næstu brælu. Að auki varð til frægt ljóð um skáklistina sem hefur aukið hróður eyju B víða og gert alla íbúa hennar stolta.
Vissulega er ofangreint dæmi mikil einföldun en sýnir samt sem áður hvernig grunnframleiðsla og skapandi greinar geta spilað saman. Það er, að mínu mati, ótrúlegur hroki að gera lítið úr skapandi greinum sem eru svo mikilvægar til að skapa grundvöll til að velta verðmætum áfram svo að sem flestir fái að njóta þeirra. Á sama tíma er jafn óskiljanlegur hroki þegar menn leyfa sér að gera lítið úr góðum og gildum verksmiðju- og fiskvinnslustörfum sem skapa grunnverðmæti þjóðfélagsins.
Annaðhvort/eða-umræða hefur alltaf truflað mig enda skil ég ekki hvernig starf í álveri fyrir austan rýrir möguleika Reykvíkings á að semja listdans. Í einfeldni minni hélt ég alltaf að þetta færi saman þ.e. álverið skapar grunnverðmæti sem eru að hluta til nýtt til að greiða starfsmanni laun. Þessi sami starfsmaður getur svo mögulega nýtt þessi laun til að brenna suður og borga sig inn á þessa mögnuðu danslistsýningu.
Oft skapar mannauðurinn einn og sér bein verðmæti eins og þegar íslenskur tölvuleikur er seldur erlendis, skáldverk eru þýdd og íslenskar kvikmyndir seldar á breiðtjöld framandi landa. Allir þessir stórkostlegu hlutir tengjast þó því að grunnverðmætasköpun eins og fiskveiðar og orkunýting hefur skapað tekjur til að smíða gott menntakerfi og standa undir nýsköpunarsjóðum, listamannalaunum og Kvikmyndasjóði. Þetta eru skynsamlegar fjárfestingar sem skapa möguleika á að margnýta sömu krónuna og jafnvel stuðla að enn frekari útflutningi.
Hættum að garga og berum virðingu fyrir störfum hvert annars, því mikið væri Ísland aumt ef öll grunnframleiðsla festist í vasa fárra eða færi beint í erlend vörukaup. Er ekki betra að stuðla að aukinni verðmætasköpun og láta svo skapandi greinar velta þeim um hagkerfið svo að sem flestir njóti?
Skoðun

Leiðréttingar á staðhæfingum um mjólkurmarkaðinn og tollflokkun
Erna Bjarnadóttir skrifar

Háhyrningadans - hörmungar í Loro Parque
Valgerður Árnadóttir,Rósa Líf Darradóttir,Aldís Amah Hamilton,Ragnheiður Gröndal,Hulda Jónsdóttir Tölgyes,Klara Ósk Elíasdóttir skrifar

Traustur vinur getur gert voðaverk!
Arnrún María Magnúsdóttir skrifar

Hrós getur skipt sköpum
Ingrid Kuhlman skrifar

Leiðrétting vegna rangfærslna framkvæmdastjóra Félags atvinnurekenda
Elín Margrét Stefánsdóttir skrifar

Þrautreynd baráttukona fyrir auknum fjárveitingum til Háskóla Íslands
Ragný Þóra Guðjohnsen skrifar

Vönduð vinnubrögð í umhverfismálum
Edda Sif Pind Aradóttir,Sævar Freyr Þráinsson skrifar

Jón og félagar eru farnir
Árni Guðmundsson skrifar

Gervigreind, uppfinningar og einkaleyfi
Einar Karl Friðriksson skrifar

Fyrirmynd í kennslu og fræðastarfi – af hverju við styðjum Silju Báru
Valgerður Björk Pálsdóttir,Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir skrifar

Við lifum í skjóli hvers annars
Dagný Hængsdóttir Köhler skrifar

Halldór 01.03.2025
skrifar

COVID-19: 5 ár frá fyrsta smiti
Svandís Svavarsdóttir skrifar

Meira um íslenskan her
skrifar

Sannanir í dómsmáli? Huldufyrirtæki og huldusögur
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Guðrún Hafsteinsdóttir til forystu
Hópur Sjálfstæðismanna skrifar

Háskóladagurinn og föðurlausir drengir
Margrét Valdimarsdóttir skrifar

Björn Þorsteinsson er gefandi og gagnrýninn stjórnandi fyrir öflugan Háskóla Íslands
Nanna Hlín Halldórsdóttir,Katrín Pálmad. Þorgerðardóttir skrifar

En hvað með mig kórinn: Eiga kennarar að vera lægsti samnefnari launaþróunar
Davíð Már Sigurðsson skrifar

Vandi Háskóla Íslands og lausnir – III – Fjármögnun háskóla
Pétur Henry Petersen skrifar

Loðnukreppan: Fleiri hvalir þýða meiri fiskur
Micah Garen skrifar

Tölum um það sem skiptir máli
Flosi Eiríksson skrifar

Hvernig borg verður til
Dóra Björt Guðjónsdóttir skrifar

Vill ríkisstjórnin vernda vatnið okkar?
Snæbjörn Guðmundsson skrifar

Tækifærin felast í hjúkrunarfræðingum
Helga Rósa Másdóttir skrifar

Ert þú ung kona á leiðinni á landsfund?
Hópur ungra Sjálfstæðiskvenna skrifar

Dagur sjaldgæfra sjúkdóma 2025
Alice Viktoría Kent skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn – Breiðfylking framtíðar
Sigvaldi H. Ragnarsson skrifar

Guðrún Hafsteins nýr leiðtogi - Sameinandi afl
Jóna Lárusdóttir skrifar

Látum verkin tala
Sigríður María Björnsdóttir Fortescue skrifar