Menning

Þórey Eyþórsdóttir með líflega listsýningu í SÍM-salnum

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Listakonan Þórey notar margs konar aðferðir við listsköpun sína. Hún kann til dæmis að vefa.
Listakonan Þórey notar margs konar aðferðir við listsköpun sína. Hún kann til dæmis að vefa. Fréttablaðið/Pjetur
„Ég nota margvísleg efni í listaverkin mín og beiti blandaðri tækni, sumt er til dæmis saumað og annað límt,“ segir Þórey Eyþórsdóttir myndlistarkona, sálfræðingur og talmeinafræðingur glaðlega. Hún telur upp silki, ull, loðskinn, leður, roðskinn, flauel, bómull, vírnet og steina frá Djúpalónssandi sem dæmi um efnivið í verkunum.

Þórey heldur sýningu í sal Sambands íslenskra myndlistarmanna að Hafnarstræti 16 í Reykjavík. Sýninguna nefnir hún Frá einu til annars. Þar er hún meðal annars með nokkrar litlar landslagsmyndir og eitt verkanna varð til eftir að þrjár afrískar konur fengu friðarverlaun Nóbels 2011. Flottar og stoltar konur.

Þórey hefur haldið margar myndlistarsýningar hér á landi, í Noregi og Danmörku og tekið þátt í fjölda samsýninga. Sýning hennar í SÍM-salnum stendur til 25. september og er opin alla virka daga frá klukkan 10 til 16.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.