Menning

Rómantík, glettni, fjör og leyndarmál

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Ármann og Peter hafa aldrei áður spilað heila dagskrá saman en Ármann segir samstarfið hafa verið skemmtilegt og gjöfult.
Ármann og Peter hafa aldrei áður spilað heila dagskrá saman en Ármann segir samstarfið hafa verið skemmtilegt og gjöfult.
Við verðum dálítið á rómantísku nótunum en það er líka mikið fjör og glettni í þessum verkum,“ segir Ármann Helgason klarinettuleikari, sem í kvöld heldur tónleika í Norræna húsinu ásamt píanóleikaranum Peter Maté. Tónleikarnir eru hluti af tónleikaröðinni Klassík í Vatnsmýrinni, tónleikaröð Félags íslenskra tónlistarmanna – klassískrar deildar FÍH í samvinnu við Norræna húsið.



Á efnisskránni eru þrjár sónötur eftir Brahms, Poulenc og Jón Þórarinsson, auk tveggja stemningsverka fyrir klarinett og píanó; Fantasíu eftir Carl Nielsen og Ristum eftir Jón Nordal.



„Sónötur þeirra Brahms og Poulenc eru báðar samdar skömmu fyrir andlát tónskáldanna,“ segir Ármann. „Það er stundum sagt í gríni að þegar tónskáld hafi samið sín stórkostlegustu verk deyi þau fljótlega, þeirra hlutverki sé lokið, en ég sel það ekki dýrar en ég keypti. Það er líka gaman að flytja sónötuna eftir Jón Þórarinsson, ekki síst þar sem hann lést í fyrra.“



Yfirskrift tónleikanna er Þrjár sónötur og leyndarmál og Ármann segir leyndarmálin tengjast verkinu Ristur eftir Jón Nordal, enda hafi forfeður okkar rist sín leyndarmál í stein. „Svo leikum við líka Fantasíu eftir danska tónskáldið Carl Nielsen sem er feikiskemmtilegt verk. Þannig að ég vona að við náum að blása á lægðirnar og að okkur takist spila inn litríki haustsins.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×