Menning

Syngja upp úr Rauðu bókinni í Hallgrímskirkju

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Upphaflega handritið að Llibre vermell. Handritið er frá 14. öld.
Upphaflega handritið að Llibre vermell. Handritið er frá 14. öld.
Hópur nemenda úr tónlistardeild LHÍ mun í hádeginu í dag flytja efnisskrá frá miðöldum til upphafs 17. aldar í Hallgrímskirkju.

„Allir nemendur í hverjum árgangi taka einn tónbókmenntaáfanga á önn þar sem þau eru að stúdera ákveðin tímabil í tónlistarsögunni,“ útskýrir Sigurður Halldórsson, fagstjóri í tónlistardeild LHÍ, spurður hvað liggi að baki tónleikunum í dag. „Hluti af þessum tímum er verklegur þannig að nemendur komist í betra samband við tónlistarsöguna með því að flytja hana og æfa hana og upplifa hana á eigin líkama.“

Uppistaða tónleikanna er hluti af katalónska tónlistarhandritinu Llibre vermell - eða Rauðu bókinni frá Montserrat-klaustrinu skammt frá Barcelona. Handritið er frá 14. öld og inniheldur keðjusöngva á latínu og pílagrímasöngva á katalónsku. Hópurinn, sem telur um 25 manns, hefur undanfarnar vikur einbeitt sér að bæði fræðilegum og verklegum þáttum tónlistar frá miðöldum og endurreisn.

Tónleikarnir hefjast klukkan 12.30. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.