Menning

Skoðar konurnar sem manneskjur

 Maríanna Clara segist ekki ætla að vera mjög fræðileg í fyrirlestri sínum heldur varpa fram ýmsum spurningum um bókina.
Maríanna Clara segist ekki ætla að vera mjög fræðileg í fyrirlestri sínum heldur varpa fram ýmsum spurningum um bókina. Fréttablaðið/Anton
Í tilefni af ritþingi Gerðubergs 12. október þar sem fjallað verður um Kristínu Steinsdóttur verður bókmenntanámskeið í Gerðubergi í kvöld. Þar mun Maríanna Clara Lúthersdóttir fjalla um verðlaunabók Kristínar, Ljósu, auk þess sem Kristín lítur við og spjallar við þátttakendur.



„Ég ætla að fjalla almennt og frekar opið um bókina og skoða hana aðeins í tengslum við aðrar bækur Kristínar,“ segir Maríanna Clara. „Svo verða umræður og síðan ætlar Kristín að koma og við verðum svo heppnar að fá að spyrja hana út í bókina. Þetta verður stutt og laggott, tveir tímar, en vonandi skemmtilegt. Ég hlakka allavega mikið til.“

Hvers vegna kallið þið þetta námskeið, er þetta ekki bara fyrirlestur? „Ja, ég veit það svo sem ekki, en það er mjó lína á milli námskeiðs og fyrirlesturs. Flest námskeið í Háskólanum eru til dæmis í fyrirlestraformi. Ég hugsaði nú ekkert út í neinar skilgreiningar, fannst bara freistandi að fá að gera þetta og sló til, enda Kristín í miklu uppáhaldi hjá mér.“



Hvað ætlarðu helst að draga fram? „Ég ætla að skoða bókina út frá nokkrum sterkum þemum eða áherslum. Skoða konurnar, þetta er kvennasaga undir formerkjunum konan sem manneskja, sem Kristín skrifar svo listavel. Svo er það geðveiki og sköpunarkraftur sem hafa nú oft verið nátengd. Þetta er líka söguleg skáldsaga og kallast þar að auki skemmtilega á við ákveðna sveitarómantík sem hefur verið að finna í íslenskum bókmenntum. Þetta verður ekki mjög fræðilegt heldur ætla ég að velta upp nokkrum mismunandi flötum á bókinni því hún er í rauninni margbrotin.“



Nauðsynlegt er að skrá sig á námskeiðið annaðhvort með pósti á netfang Gerðubergs eða í síma. Það hefst klukkan 20 og lýkur um klukkan 22.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.