Menning

Bergsveinn tilnefndur til Brage-verðlauna

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Bergsveinn Birgisson. Bók hans Svarti víkingurinn er fyrsta bókin eftir mann með erlendan ríkisborgararétt sem tilnefnd er til Brage-verðlaunanna norsku.
Bergsveinn Birgisson. Bók hans Svarti víkingurinn er fyrsta bókin eftir mann með erlendan ríkisborgararétt sem tilnefnd er til Brage-verðlaunanna norsku. Fréttablaðið/Daníel
Bók Bergsveins Birgissonar, Svarti víkingurinn, er tilnefnd í flokki fræðirita til Brage-bókmenntaverðlaunanna en það eru virtustu bókmenntaverðlaun sem veitt eru í Noregi. Á heimasíðu verðlaunanna segir að ekki sé vitað til þess að útlendingur hafi fyrr verið tilnefndur.



Svarti víkingurinn fjallar um forföður Bersveins, Geirmund heljarskinn, konungsson frá Rogalandi, sem lét að sér kveða á Íslandi á níundu öld. Bókin skiptist í fjóra hluta, eftir þeim landsvæðum þar sem Geirmundur heldur sig: Rogaland, Bjarmaland (N-Rússland), Írland og Ísland. Áralangar rannsóknir liggja að baki henni auk þess sem persónuleg sýn Bergsveins á viðfangsefnið eykur vídd sögunnar, að því er segir á fyrrnefndri heimasíðu Brage-verðlaunanna. Til viðbótar gengur sagnfræði bókarinnar þvert á viðurkenndar hugmyndir um landnám og þróun Íslands, segir þar enn fremur.



Bergsveinn starfar sem háskólakennari í Bergen. Hann var í fyrra tilnefndur til bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs af Íslands hálfu fyrir skáldsöguna vinsælu Svar við bréfi Helgu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.