Menning

Trúir ekki á drauga

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Steinar Bragi segist vera algerlega sneyddur yfirnáttúrulegum hæfileikum. Hann hefur þó sent frá sér bók um reimleika í Reykjavík.
Steinar Bragi segist vera algerlega sneyddur yfirnáttúrulegum hæfileikum. Hann hefur þó sent frá sér bók um reimleika í Reykjavík. Fréttablaðið/Valli
Þetta er alfarið hugmynd Rakelar,“ segir Steinar Bragi spurður hvernig honum hafi dottið í hug að skrifa bók um draugagang í reykvískum húsum. „Hún leitaði til Forlagsins fyrir ári síðan og óskaði eftir höfundi sem fengist til að taka að sér þetta furðulega verkefni.“



Og þeim hefur strax dottið þú í hug? „Ja, einhverjum þar var kunnugt um að ég hef verið að safna drauga- og furðusögum í hátt í tuttugu ár og hluti af sögunum í bókinni er byggður á þeim heimildum. Svo tókum við viðtöl við fólk og heimsóttum hús þar sem sagt er reimt. Völdum svo úr bestu, óhugnanlegustu og minnst þekktu sögurnar til að birta í bókinni.“



Varðstu var við reimleika í húsunum sem þið heimsóttuð? „Nei, ég er algjörlega laus við yfirnáttúrulega hæfileika. Ég trúi ekki einu sinni á drauga. Ég kom bara inn í þetta af forvitni og neita að trúa fólki þegar það segist hafa upplifað þessa hluti. Samt er ég í alvöru forvitinn, langar að skilja og nálgast reynsluna, en ég er alveg lokaður. Held bara mínu ferkantaða striki.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.