Menning

Hallgrímur Helgason ausinn lofi

Sigríður Björg Tómasdóttir skrifar
Bók Hallgríms Helgasonar, Konunni við 1000°, er líkt við eldfjöll, sögð hnífskörp og bókmenntalegt sprengiefni í gagnrýni danskra fjölmiðla.
Bók Hallgríms Helgasonar, Konunni við 1000°, er líkt við eldfjöll, sögð hnífskörp og bókmenntalegt sprengiefni í gagnrýni danskra fjölmiðla. Fréttablaðið/Valli
Skáldsaga Hallgríms Helgasonar Konan við 1000° fær afbragðsdóma hjá dönskum gagnrýnendum en bókin kom nýverið út þar í landi í þýðingu Kims Lembek.

Gagnrýnandi Berlingske tidende, Jørgen Johansen, gefur henni fimm stjörnur af sex. Sömu sögu er að segja af Sebastian Hansen á Extra Bladet, hann gefur skáldsögunni fimm stjörnur af sex. Bókin fær fjögur hjörtu af sex hjá May Schack í Politiken og Marianne Koch hjá Fyens Stiftstidende gefur henni fimm stjörnur af sex. „Haldiði kjafti hvað þetta er æðisleg skáldævisaga," segir Marie Louise Wedel Bruun í Elle, sem velur Konuna við 1000° sem bók mánaðarins.

Þessir gagnrýnendur og aðrir sem hafa fjallað um bókina eru sammála um að Hallgrímur væri vel að Bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs kominn en Konan við 1000° er framlag Íslands til þeirra ásamt bók Guðmundar Andra Thorssonar, Valeyrarvalsinum. Bókmenntaverðlaunin verða veitt á næstunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.