Menning

Syngja þekkt söngleikjalög

Sara McMahon skrifar
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Margrét Eir og Orri Huginn Ágústsson syngja þekkt söngleikjalög í Salnum á föstudag.
Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Bjarni Snæbjörnsson, Margrét Eir og Orri Huginn Ágústsson syngja þekkt söngleikjalög í Salnum á föstudag. Fréttablaðið/Vilhelm
„Við erum öll með frekar svipaðan smekk og yfirleitt sammála um hvaða lög eigi að taka. Það fá allir að velja sín sólólög sjálfir og svo veljum við hóplögin út frá því sem við teljum að áhorfendur vilji heyra,“ segir Sigríður Eyrún Friðriksdóttir söngkona. Hún stendur fyrir tónleikaröðinni Ef lífið væri söngleikur ásamt Bjarna Snæbjörnssyni, Margréti Eiri og Orra Hugin Ágústssyni. Lokatónleikar tónleikaraðarinnar verða í Salnum á föstudag.

Sigríður Eyrún stundaði nám við söngleikjadeild Guildford School of Acting í Bretlandi og nam einnig hjá Elaine Overholt söngkonu og einum þekktasta raddþjálfara Bandaríkjanna. „Ég byrjaði ung í söngnámi og fór svo í leiklist í menntó og áttaði mig á því að ég vildi sinna bæði söng- og leiklistinni. Söngleikjanámið sameinaði bæði áhugamálin.“

Sigríður Eyrún og Bjarni hafa unnið mikið saman í gegnum tíðina og koma meðal annars fram sem dúettinn Viggó og Víóletta. „Við unnum saman öll fjögur við uppsetningu Vesalinganna í fyrra og þegar því lauk vildum við halda samstarfinu áfram og úr varð þessi tónleikaröð,“ útskýrir hún.

Hópurinn tekur lög úr söngleikjunum á borð við Rocky Horror, Jesus Christ Superstar, Litlu hryllingsbúðina, Avenue Q, Wicked og Spring Awakening. „Við tökum mikið af lögum úr Hárinu og Rocky Horror en einnig úr nýjum söngleikjum á borð við The Book of Mormon, sem er eftir höfunda South Park-þáttanna, og Ragtime.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×