SMÁÍS hafnar ásökunum um stuld Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 31. janúar 2013 14:09 Snæbjörn segir SMÁÍS vinna hörðum höndum að því að endursemja.
Snæbjörn Steingrímsson, framkvæmdastjóri SMÁÍS, segir það af og frá að samtökin noti hugbúnað í leyfisleysi, en Viðskiptablaðið greinir frá því í dag að ekki hafi verið staðið við samning milli samtakanna og NICAM í Hollandi. SMÁÍS notast við skoðunarkerfi fyrir aldurs- og innihaldsmerkingar frá NICAM, og að sögn Wim Bekkers, framkvæmdastjóra NICAM, er SMÁÍS í raun að nota kerfið í leyfisleysi, í ljósi þess að engar af samningsbundnum greiðslum fyrir notkun kerfisins hafi borist. Snæbjörn segir samninginn enn í gildi og að hann renni ekki út fyrr en í júlí á þessu ári. „Þetta er auðvitað vandræðalegt fyrir okkur, ég neita því ekki," segir Snæbjörn, en bætir því við að málið snúist um vanskil samtakanna á greiðslum en ekki ólöglega notkun á hugbúnaði. Þá hafi talsvert verið greitt vegna kerfisins nú þegar. Ber þeim Snæbirni og Bekkers saman um að verið sé að reyna að endursemja samninginn, en Snæbjörn segir það óeðlilegt að samningsaðili, þá í þessu tilfelli NICAM, fari með trúnaðarupplýsingar um viðsemjanda sinn í fjölmiðla. SMÁÍS hyggist þó ekki gera athugasemd við það. „Við erum auðvitað ekki í neitt sérlega góðri stöðu til þess að kvarta undan því," segir Snæbjörn og bætir því við að nú hafi allt verið sett í fimmta gír til þess að ljúka málinu.
Mest lesið Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Innlent Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Innlent Margt bendi til þess að Rússar hafi haft aðkomu að flugslysinu Erlent Alvarlegt bílslys í Öræfum Innlent Stuðningsmenn Assad drápu 14 ráðuneytisstarfsmenn Erlent Grímuskylda á Landspítalanum Innlent Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Innlent Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Innlent Nokkrir látnir í alvarlegu rútuslysi í Noregi Erlent Sæstrengur milli Eistlands og Finnlands rofinn Erlent Fleiri fréttir Holtavörðuheiðinni lokað aftur í kvöld Sex voru fluttir með þyrlunni Gamla ríkið falt og milljónir fylgja Telja skemmdir í Bláfjöllum minniháttar Súðavíkurhlíð opin til 16 Alvarlegt bílslys í Öræfum Rólegt á aðfangadag en mikil aðsókn í viðtalstíma í desember Snjóflóð féllu á Súðavíkurhlíð Rúta rann yfir rangan vegarhelming út í móa Týndu vagni með jólamáltíðum sjúklinga á bráðamóttökunni Snjóflóð féll á Súðavíkurhlíð og rólegt í Kvennaathvarfinu Skógaskóli verður hótel Grímuskylda á Landspítalanum Búið að opna Hellisheiði og Holtavörðuheiði Strætó rann á bíl og ruslaskýli Töldu að ævilöng vesælmennska biði „barnanna á mölinni“ Jólakindin Djásn á Stokkseyri Standa vaktina á jóladag: „Þetta er bara eins og hina dagana“ Standa vaktina við lokunarpósta á jóladag Flugferðir hafnar að nýju í Keflavík Þak fauk nánast af hlöðu Fagna jólunum í Betlehem í skugga stríðs Hellisheiði og Þrengsli opna ekki fyrr en á morgun Aðeins ein flugvél lent í Keflavík í dag Útköll víða vegna óveðurs Erfiður tími þegar dóttirin kom út sem trans Gott að geta sagt „þú ert hjartanlega velkominn“ Appelsínugular viðvaranir og jólaboð hjá Hjálpræðishernum Á vaktinni við lokunarpósta alla jólanótt Tveir vörðu jólanótt í fangaklefa Sjá meira