Menning

Barokk Nordic Affect

Sigríður Björg Tómasdóttir skrifar
Halla Steinunn Stefánsdóttir
Halla Steinunn Stefánsdóttir
„Á þessum tónleikum ætlum við að virða fyrir okkur tónlistarkennslu og hvaða leiðir tónlistarfólk fór á barokktímanum,“ segir Halla Steinunn Stefánsdóttir, listrænn stjórnandi kammerhópsins Nordic Affect.

Hópurinn kemur fram á tónleikum í kvöld í Þjóðmenningarhúsinu en tónleikarnir eru hluti af tónleikaröð hópsins sem skoðar að sögn Höllu ýmsa þætti tónlistarsögu Evrópu barokktímans, 17. og 18. aldar, á tónleikum raðarinnar.

„Við spilum meðal annars verk eftir Hotteterre, sem gaf út fyrstu flautukennslubókina, og sónötu eftir Cima, sem er sú fyrsta sem er skrifuð fyrir fiðlu. Svo var ekki hægt að sleppa Bach. Kennsla var mjög öflugur þáttur í starfi hans og gerir það að verkum að hann hverfur ekki úr sögunni við andlátið, verk hans lifa með nemendum hans en þeirra þekktastir eru synir hans.“

Flytjendur á tónleikunum eru auk Höllu Steinunnar fiðluleikara, Georgia Browne þverflautuleikari, Sigurður Halldórsson sellóleikari og Guðrún Óskarsdóttir semballeikari.

Tónleikarnir hefjst klukkan átta.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.