Lífið

Fæturnir afmyndaðir eftir hælanotkun

Leikkonan Sarah Jessica Parker hefur fengið þau tilmæli frá lækni að hætta að ganga í hælaskóm dags daglega. Því hefur hún skipt þeim út fyrir þægilega strigaskó.

Ástæðan? Jú, fætur hennar eru afmyndaðir eftir himinháa hælaskó.

Alltaf smart.
"Ég bókstaflega hljóp um í hælum í tíu ár eða svo. Ég vann átján tíma á dag og fór aldrei úr þeim. Ég var í fallegum skóm, sumir vandaðri en aðrir, og ég kvartaði aldrei," segir leikkonan í viðtali við tímaritið Net-a-Porter.

Sarah er þekktust fyrir að túlka Carrie Bradshaw í Sex and the City.
Sarah smellir sér nú samt í hælaskó á tyllidögum en hún sleppir því í amstri dagsins þegar hún þarf að snúast í kringum börnin sín þrjú.

Toppkona.
Þú gætir unnið - vertu með okkur á Facebook.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×