Embla er ein stærsta samfélagsmiðlastjarna okkar Íslendinga og er búsett í London þar sem hún hefur verið að gera góða hluti.
„Lífið í London er bara yndislegt. Ég fór heim til íslands um jólin sem var æði og algjör slökun en finnst alltaf mjög gott að koma aftur til London. Hér er alltaf nóg um að vera,“ segir Embla í samtali við blaðamann en hún er í sambandi með Bretanum Theo Kontos.

Embla er með 2,5 milljónir fylgjenda á TikTok og 218 þúsund fylgjendur á Instagram þar sem hún deilir gjarnan ýmsum listrænum förðunarmyndböndum.
Aðspurð segist Embla vera mikil bíókona en hún hefur fengið nokkur boð á skemmtilegar forsýningar sem þessa.
„Ég elska að fara í bíó og hef fengið að fara á svona viðburði af og til. Síðast fór ég á frumsýningu Damsel með Milly Bobby Brown.“
Kvikmyndin A Complete Unknown segir frá lífi goðsagnarinnar Bob Dylan og risi hans til frægðar og frama. Timothée Chalamet fer með hlutverk Dylan og er myndin væntanleg í kvikmyndahús hér á landi 23. janúar.
Hér má sjá stiklu úr kvikmyndinni:
„Leikarahópurinn var sömuleiðis viðstaddur og áður en myndin byrjaði komu þau fram og sögðu nokkur orð um bíómyndina og ferlið við að vinna að henni. Það er mjög skemmtilegt að fá að fara á svona frumsýningar, fá að sjá leikarana og líka gaman að sjá fleiri áhrifavalda sem eru meðal gesta,“ segir Embla.

