Tíska og hönnun

Apar eftir Pretty Woman-kjólnum

Leikkonan Emma Watson hefur sannað það að hún er ekkert barn lengur og vill ólm losna við Harry Potter-ímyndina. Hún er heldur betur reffileg á síðum breska GQ.

Á einni myndinni býður hún upp á kjól sem er sláandi líkur þeim sem Julia Roberts klæddist í kvikmyndinni Pretty Woman. Sá kjóll er einn sá frægasti í kvikmyndasögunni en Julia lék vændiskonu í myndinni eins og flestir muna.

Kynþokkafull á forsíðunni.
Í viðtali við blaðið talar Emma mikið um nýjustu mynd sína Bling Ring sem fjallar um hóp af fólki sem brýst inn til stjarna á borð við Lindsay Lohan og Paris Hilton.

Julia Roberts í kjólnum fræga.
"Þetta er stór karakter. Það er spennandi fyrir mig því það þýddi að ég var í alvörunni að leika," segir Emma.

Emma er 22ja ára gömul.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.