Menning

Fannst alltaf skemmtilegast að horfa í smásjá

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Björg Atla sýnir bæði í Kirsuberjatrénu og Breiðholtskirkju þessa dagana.
Björg Atla sýnir bæði í Kirsuberjatrénu og Breiðholtskirkju þessa dagana. Fréttablaðið/GVA
Það hittist bara svona á að mér er boðið að sýna á þessum tveimur stöðum samtímis,“ segir Björg Atla myndlistarkona sem sýnir nú málverk bæði í Kirsuberjatrénu við Vesturgötu og í anddyri Breiðholtskirkju. „Í Herbergi í Kirsuberjatrénu sýni ég tuttugu litlar myndir en í Breiðholtskirkju eru þrjú stór málverk. Þetta eru óhlutbundin málverk í sterkum litatónum sem túlka mína innri sýn.“

Björg á nokkuð óvenjulegan feril í myndlistinni því hún útskrifaðist ekki úr Myndlista- og handíðaskólanum fyrr en hún var fertug. Áður en hún hóf námið hafði hún starfað sem lífeindafræðingur.

Sterkir litir Eitt verkanna á sýningunni í Kirsuberjatrénu.
„Þetta var löng leið,“ viðurkennir hún brosandi. „Pabbi minn hét Atli Már og var myndlistarmaður og grafískur hönnuður þannig að ég hafði alist upp við það að vera síteiknandi. Ætlaði mér samt ekkert að fara út í myndlistina, kenndi í nokkur ár úti á landi eftir stúdentspróf og fór síðan í Tækniskólann og lærði lífeindafræði. Ég starfaði við það í nokkuð mörg ár en fannst alltaf skemmtilegast að horfa í smásjá og vera með sterkar litaupplausnir þannig að maðurinn minn sá fram á það að ég yrði bara að komast í myndlistarskóla. Og það gerði ég. Útskrifaðist 1982 og hef lifað af myndlistinni síðan, bæði sem málari og kennari.“

Sýningunni í Kirsuberjatrénu lýkur 5. ágúst en sú í Breiðholtskirkju stendur til 18. ágúst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×