Menning

Hrífst af fegurðinni í óhugnaði og myrkri

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Þórður Grímsson sýnir í Artímu galleríi til 4. ágúst.
Þórður Grímsson sýnir í Artímu galleríi til 4. ágúst. Fréttablaðið/Arnþór
Ég hef verið að rannsaka geómetrísk tákn út frá hinni heilögu geómetríu og gullinsniði, sem sagt þeim táknum og mælieiningum sem binda heiminn saman,“ segir Þórður Grímsson myndlistarmaður sem í gærkvöldi opnaði sýninguna Skyndreymi og táknvilla í Artímu galleríi undir listamannsnafninu Svartval. „Mér finnst einhver fagurfræði í þessum táknum og formúlum þannig að ég tek þau inn og bý til minn eigin heim sem vonandi segir áhorfendunum eitthvað um þessa rannsókn.“



Inn í þennan heim Þórðar spila kenningar Jungs og Freuds en hann segir það beintengt þeim rannsóknum sem hann hefur stundað. „Það er þessi sameiginlega undirmeðvitund, það að við skynjum öll tákn á svipaðan hátt, og svo að sjálfsögðu óhugnaðurinn í listum og hverjar eru forsendur heimsins sem maður býður fólki inn í í verkunum.“



Þórður útskrifaðist úr LHÍ 2009 og hefur síðan haldið eina einkasýningu á ári auk þess að taka þátt í samsýningum. Eru viðfangsefni hans alltaf þau sömu? „Já, ég hef eiginlega alltaf verið að vinna í þessum heimi. Ekki alltaf í sama miðlinum samt, hef unnið í hina og þessa miðla. Á þessari sýningu er mikið prentverk og teikningar, en áður hef ég stundum verið í blekmálun, vídeói og bara þeim miðli sem hentar efniviðnum best hverju sinni.“



Þórður segir áhugann á þessum heimi hafa kviknað þegar hann vann að BA-ritgerð sinni sem fjallaði um óhugnað í listum. „Hvað það er sem vekur óhug og fegurð á sama tíma og hvaða fegurð leynist í myrkrinu. Það er það sem hrífur mig.“

Nafn sýningarinnar er nokkuð sérstakt, hvað liggur þar að baki? „Þetta er svona orðarugl úr orðunum skynvilla og tákndreymi. Mann dreymir tákn og ég vildi snúa þessu við og búa til einhver ekki-orð.“



Þetta listamannsnafn, Svartval, hvaða merkingu hefur það? „Þetta er bara nafn sem ég hef notað lengi og hefur vísun í Stórval þar sem hann var naívískur málari. Sjálfur er ég naívískur hugarlandslagsmálari.“



Sýningin í Artímu stendur til 4. ágúst og sýningarstjórar eru Heiða Jónsdóttir og Anna Margrét Björnsson.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.