Lífið

Foreldrarnir skilja

Billy Ray Cyrus og Tish, foreldrar poppsöngkonunnar Miley Cyrus, eru skilin eftir nítján ára hjónaband.

“Þetta er persónulegt mál og við viljum leysa það á sem farsælastan hátt fyrir fjölskylduna. Við viljum biðja ykkur að virða einkalíf okkar að svo stöddu,” segir Tish í yfirlýsingu.

Hjónabandið búið.
Samband þeirra hefur verið afar stormasamt síðustu ár og sótti Billy Ray um skilnað árið 2010. Fimm mánuðum seinna tók hann það til baka og vildi vinna í sambandinu. Nú er ástarloginn hins vegar slokknaður. Auk Miley eiga þau fjögur börn saman.

Feðginin.
Dragðu Tarotspil dagsins hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.