Menning

Nýjustu fréttir á Edinborgarhátíðinni

Sló í gegn Sýningin Nýjustu fréttir vakti einróma hrifningu íslenskra gagnrýnenda og var tilnefnd til tvennra Grímuverðlauna.
Sló í gegn Sýningin Nýjustu fréttir vakti einróma hrifningu íslenskra gagnrýnenda og var tilnefnd til tvennra Grímuverðlauna.
Sýning VaVaVoom leikhópsins, Nýjustu fréttir, var valin inn í Summerhall Theatre í Edinborg þar sem hún verður hluti af leiklistarhátíðinni Edinburgh Fringe Festival 2. til 26. ágúst. Þetta er í fyrsta sinn sem hópurinn ferðast út fyrir landsteinana með verkið en það var frumsýnt í Þjóðleikhúsinu síðastliðið haust. Sýningin hlaut mikið lof gagnrýnenda hérlendis og tvær Grímutilnefningar í flokkunum Tónlist ársins og Sproti ársins.



Nýjustu fréttir er án orða og hentar vel til að ferðast með erlendis og vonast aðstandendur sýningarinnar til að Skotlandsförin verði stökkpallur fyrir frekari ferðalög og lengi framhaldslíf verksins.



Edinborgarhátíðin er ein stærsta listahátíð í Evrópu og stendur yfir í þrjár vikur. Þátttaka í hátíðinni getur skipt sköpum fyrir leikhópa sem vilja kynna sig á Bretlandseyjum og víðar í Evrópu, þar sem allir helstu leikhúsgagnrýnendur, framleiðendur og bókarar mæta á hátíðina til að kynna sér framboð nýrra verka. Leikhópar gera samstarfssamning við leikhús í borginni um sýningarrými en fjármagna þátttöku alfarið sjálfir.



VaVaVoom opnaði því svæði á Karolina Fund. Þar er hægt að styrkja hópinn með frjálsum framlögum og fá margvíslegt góðgæti tengt sýningunni sem þakkarvott í staðinn, allt frá handskrifuðum póstkortum frá hópnum í Edinborg til handgerðra pop-up húsa úr sýningunni og tónlistar úr verkinu – en hún hefur ekki verið fáanleg fram til þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.