Menning

Áhorfendur fengu ekki að sjá þetta atriði á Eddunni

Ellý Ármanns skrifar
Eins og sjá má á meðfylgjandi mynd átti leikarinn Pétur Jóhann Sigfússon ekki í miklum vandræðum með að troða sér inn í glerpúltið sem stóð á miðju sviði í Eldborgarsal Hörpunnar á Eddunni í gær.

Áhorfendur Stöðvar 2 fengu ekki að njóta þess að sjá leikarann koma sér fyrir í glerpúltinu og heldur ekki þegar hann þakkaði forseta Íslands Ólafi Ragnari Grímssyni sérstaklega fyrir að "klára Icesave-málið" eins og hann orðaði það við mjög góðar undirtektir viðstaddra.

Þá dansaði sjónvarpskonan góðkunna Margrét Erla Maackmagadans ásamt Loga Bergmanni og Helgu Brögu leikkonu. Margrét og Helga fengu alla gesti Eddunnar til að rísa úr sætum og dansa með sér. Mugison og kona hans sungu einnig fyrir gesti á meðan sjónvarpsáhorfendur horfðu á auglýsingarnar.

Hér má skoða myndir af glæsilegum gestum Eddunnar.

Símamynd tekin á Eddunni í gærkvöldi þegar Pétur Jóhann sló á létta strengi eins og honum einum er lagið í rúmar þrjár mínútur á meðan auglýsingar voru sýndar í beinni útsendingu.
Margrét Erla Maack fékk flesta ef ekki alla gesti á Eddunni til að rísa úr sætum og dansa magadans.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.