Hrönn Marinósdóttir, framkvæmdastjóri kvikmyndahátíðarinnar RIFF og einn stjórnarmanna þar, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún segir margvíslegs misskilnings gæta í frétt Vísis og Bylgjunnar frá í gær. Þar var rætt við Einar Örn Benediktsson, formann menningar og ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar og falast eftir viðbrögðum hans við grein sem stjórnin skrifaði og birtist í Fréttablaðinu á mánudag. Málið snýst um að menningar og ferðamálaráð ákvað að samþykkja aðra umsókn en þeirri frá RIFF til að standa að alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík. Til þeirrar hátíðar verður veitt 8 milljónum en í fyrra naut RIFF samsvarandi styrks sem nemur 9 milljónum, en RIFF hefur verið starfrækt í tíu ár.
Einar Örn var í viðtali við Harmageddon í morgun þar sem þetta mál var sérstaklega til umræðu.
Málefni RIFF voru einnig til umfjöllunar í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær.
Í yfirlýsingu Hrannar, sem birtist hér neðar í heild sinni, segir meðal annars að Einar Örn haldi því fram að ósamræmi sé á milli aðsóknartalna á RIFF og uppgjörs miðasölu í ársreikningi. „Það kemur aðstandendum RIFF á óvart að Einari Erni sé ekki ljóst að inni í aðsóknartölum RIFF eru ekki aðeins seldir miðar á hátíðina heldur einnig fjöldi aðgangspassa og miða sem meðal annars gestir hátíðarinnar og samstarfsaðilar, þar á meðal borgarfulltrúar og borgarstarfsmenn, fá endurgjaldslaust frá RIFF.“
Þá vitnar Vísir í gamla frétt DV um svarta skýrslu um RIFF. Það þykir Hrönn ómaklegt: „... og hún sögð til marks um að hátíðin hafi verið umdeild. Af því tilefni skal tekið fram að engin svört skýrsla hefur verið gerð um RIFF.“
Athugasemd Hrannar Marinósdóttur:
Athugasemd við frétt um RIFF
Í frétt Jakobs Bjarnar Grétarssonar á Vísi í gær um málefni Alþjóðlegrar
kvikmyndahátíðar í Reykjavík, RIFF kemur fram misskilningur um starfsemi
hátíðarinnar. Í fréttinni heldur Einar Örn Benediktsson, formaður menningar- og
ferðamálaráðs Reykjavíkurborgar og borgarfulltrúi Bestaflokksins, því fram að
ósamræmi sé á milli aðsóknartalna á RIFF og uppgjörs miðasölu í ársreikningi, þar
séu gefnar upp 14 milljónir sem hann segir að menn telji „trauðla standast“, eins og
segir í fréttinni. Einar Örn „bendir mönnum á að reikna“ í þessu sambandi.
Það kemur aðstandendum RIFF á óvart að Einari Erni sé ekki ljóst að inni í
aðsóknartölum RIFF eru ekki aðeins seldir miðar á hátíðina heldur einnig fjöldi
aðgangspassa og miða sem meðal annars gestir hátíðarinnar og samstarfsaðilar, þar á
meðal borgarfulltrúar og borgarstarfsmenn, fá endurgjaldslaust frá RIFF. Rétt er að
taka fram að ársreikningur RIFF frá 2012 hefur verið endurskoðaður án athugasemda.
Bráðabirgðauppgjöri fyrir hátíðina 2013 hefur verið skilað til borgarinnar og engum
athugasemdum er ósvarað. Athugasemdin um þetta meinta misræmi kemur í fyrsta
sinn fram í frétt Vísis.
Í frétt Vísis er líka vitnað til gamallar greinar í DV um svarta skýrslu um RIFF og hún
sögð til marks um að hátíðin hafi verið umdeild. Af því tilefni skal tekið fram að
engin svört skýrsla hefur verið gerð um RIFF.
Í fréttinni segir einnig að Vísir hafi undir höndum: „bréf sem Heimili kvikmyndanna
sendi fagaðilum þar sem útskýrð er ákvörðunin sem liggur að baki því að send var inn
umsókn um nýja kvikmyndahátíð, Kvikmyndahátíð í Reykjavík, en þar segir að hún
ákvörðun [svo] um umsóknina hafi verið tekin í haust „þegar ljóst var að RIFF myndi
ekki vera með sína starfsemi í Bíó Paradís vegna viðskiptalegra forsendna eiganda
RIFF“.“
Þarna er vísað til þess að RIFF tók sl. haust lægra tilboði frá Háskólabíói um hýsingu
hátíðarinnar. Áður höfðu farið fram um það bil fimm vikna samningaviðræður við
Heimili kvikmyndanna, rekstraraðila Bíó Paradísar. Þetta eru furðulegar athugasemdir
hjá Heimili kvikmyndanna um persónulega hagsmuni eiganda RIFF. RIFF er rekin
fyrir opinbert fé og henni uppálagt að fara vel með það. Af þeim sökum var lægra
tilboðinu tekið.
Þess skal getið að í bréfi Heimilis kvikmyndanna er líka talað um samstöðu
hagsmunaaðila um nýju hátíðina. Þar er gefið í skyn að RIFF hafi verið byggð upp í
einangrun og án samstarfs við kvikmyndagerðarfólk eða aðra sem hagsmuna hafa að
gæta svo sem ferðaþjónustuna. Því fer auðvitað fjarri. RIFF hefði aldrei getað orðið
það sem hún er án samstarfs og góðs samkomulags við kvikmyndagerðarfólk og
fjöldann allan af fyrirtækjum og stofnunum sem mörg hver hafa verið með frá byrjun.
Að lokum skal bent á að þótt rekstrarform RIFF ehf. sé eins og það er þá er hátíðin í
eðli sínu ekki einkaframtak heldur samvinna fjölmargra aðila þar sem hið opinbera er
meginbakhjarl, eins og í nánast allri menningarstarfsemi af þessu tagi.
Virðingarfyllst, Hrönn Marinósdóttir
Stjórnarformaður RIFF
Enn er rifist um RIFF
