Menning

Óþekktarormur svarar fyrir sig og list sína

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Snorri í góðum gír
Snorri í góðum gír Vísir/Spessi
„Þetta er hefð í kringum sýningar, þarna gefst fólki kostur á að fræðast um listsköpunina og verkin. Ég verð einhverja tölu og sit svo fyrir svörum,“ segir Snorri Ásmundsson myndlistarmaður sem býður upp á listamannsspjall og fer einnig með gjörning í Týsgallerýi á sunnudaginn klukkan 15.00.

Þar ætlar Snorri að gefa fólk kost á að spyrjast fyrir verk hans en hann er með sýningu í gallerýinu þar sem nefnist I am so funny en sýningin er tuttugasta og fimmta einkasýningin sem Snorri hefur haldið undanfarin ár.

„Ég geri ráð fyrir að þetta listmannsspjall verði einstaklega skemmtilegt því ég er mjög fyndinn og skemmtilegur maður,“ segir Snorri spurður út í spjallið.

Nafn sýningarinnar einmitt dregið af persónuleika Snorra sem þykir einkar skemmtilegur maður.

„Menn hafa komið að mér hlæjandi, þar sem ég er í einrúmi og skellihlæ af sjálfum mér. Ég er svo ánægður með lífið og það endurspeglast í list minni,“ útskýrir Snorri.

Snorri er þekktur fyrir ýmis uppátæki þar sem hann ögrar og stríðir ríkjandi gildum. 

„Ég er krónískur óþekktarormur,“ bætir Snorri við.

Listmannsspjallið hefst klukkan 15.00 í Týsgallerýi sem stendur við Týsgötu 3.

Vísir/Spessi

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.