Menning

Vínartónleikar þrisvar í röð

Gissur Páll Gissurarson og Hanna Dóra Sturludóttir syngja einsöng með Sinfóníuhljómsveitinni á Vínartónleikunum.
Gissur Páll Gissurarson og Hanna Dóra Sturludóttir syngja einsöng með Sinfóníuhljómsveitinni á Vínartónleikunum.
Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitar Íslands hafa til margra ára verið allravinsælustu tónleikar hljómsveitarinnar og nú verða haldnir þrennir tónleikar í Eldborgarsal Hörpu. Fyrstu Vínartónleikar Sinfóníuhljómsveitarinnar voru haldnir árið 1972 en frá árinu 1981 hafa þeir verið fastur liður í tónleikahaldi hljómsveitarinnar í upphafi nýs árs.



Að þessu sinni hljómar sígild Vínartónlist undir stjórn Peters Guth sem er Íslendingum að góðu kunnur en hann hefur margsinnis stjórnað og leikið á fjörugum Vínartónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar, síðast í janúar 2013. Einsöngvarar á tónleikunum eru Hanna Dóra Sturludóttir og Gissur Páll Gissurarson.



Fyrstu tónleikarnir eru í kvöld og verða þeir síðan endurteknir annað kvöld og á laugardaginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×