Tíska og hönnun

Langar að hanna föt fyrir sinn aldurshóp

Selena Gomez
Selena Gomez Vísir/Getty
Leikkonan Selena Gomez hefur mikinn áhuga á tísku og hefur nú þegar hannað eina barnafatalínu fyrir verslunarkeðjuna Kmart. Selena mætti á tískuvikuna í París í síðasta mánuði en segir í samtali við E! að henni hafi fundist þetta dálítið stórt allt saman.

„Þetta var í fyrsta skipti sem ég fór á tískuvikuna. Þetta var eins og vera kastað inn í eld. Maður er í miðjunni á þessu öllu saman. Ég fór í lok hátíðarinnar og þetta var mjög stressandi. Mig langaði að taka myndir af öllu.

Ég hugsaði bara: „Mig langar í þetta, mig langar í þetta og mig langar í þetta!“ Selena segir að sig langi hugsanlega til þess að hanna meira en þá ekki fyrir börn.

„Nú þegar ég er orðin eldri og farin að prófa nýja hluti, þá gæti þetta breyst aðeins. Ég er ekki búin að skipuleggja neitt enn en ég veit að þetta langar mig að gera.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.