Lífið

Joe and the Juice opnar í World Class

Ellý Ármanns skrifar
Joe & the Juice keðjan hélt nýverið hóf fyrir vini og vandamenn í tilefni af því að nýr veitingastaður verður opnaður í dag í World Class Laugum. Um þessar mundir er eitt ár liðið síðan fyrsti Joe & the Juice staðurinn var opnaður hér á landi, og með staðnum í Laugum verða þeir orðnir alls þrír. Joe & the Juice er ekki eingöngu fyrir þá sem stunda líkamsrækt í Laugum heldur geta íbúar í hverfinu komið við, keypt sér mat og sest niður í rólegheitunum en sárlega hefur vantað kaffihús í Laugarneshverfið.

Á meðal þeirra sem mættu í opnunarhófið var sjálfur stofnandi Joe & the Juice, Daninn Kaspar Basse ásamt fjármálastjóranum Henrik Fjordbak, Birgir Þór Bieltvedt aðaleigandi Joe & the Juice á Íslandi, Eygló Björk Kjartansdóttir, Sólveig Eiríksdóttir og Elías Guðmundsson.

Hafdís Jónsdóttir og Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir.

Smelltu á efstu mynd í frétt til að skoða albúm í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×