Meistarar Seahawks sýndu af hverju Vince Lombardi-bikarinn er geymdur í Seattle þetta árið, en þeir litu fáránlega vel út og gjörsamlega straujuðu Packers-liðið, 36-16.
Green Bay var yfir eftir fyrsta leikhluta, 7-3, og virtist ætla að stríða Seahawks á heimavelli, en ríkjandi meisturum hefur gengið bölvanlega að vinna í fyrsta leik nýs tímabils undanfarinn áratug.
En heimamenn, með hlauparann MarshawnLynch í fantaformi, sneru taflinu við og skoraðu tvö snertimörk í öðrum leikhluta og tvö í þeim síðasta.

Hlauparinn Lynch, sem fær sér gotteríið Skittles eftir hvert snertimark, gat leyft sér tvær lúkur í nótt því hann skoraði tvö snertimörk auk þess sem hann hljóp með boltann 110 metra. Stórleikur hjá manninum sem kallaður er Beast Mode.
Russell Wilson, leikstjórnandi Seahawks, kláraði 19 sendingar af 28 sem skiluðu 191 kastmetrum og tveimur snertimörkum. Hinn magnaði AronRodgers, kollegi hans í Green Bay-liðinu, kláraði 23 sendingar af 33 sem skiluðu 189 metrum og einu snertimarki.
Sóknarleikur Green Bay var varla til staðar þökk sé frábærri vörn heimamanna, en þeir James Starks og Eddy Lacy hlupu samtals ekki nema 71 metra í 19 tilraunum.
Fyrsta leikvika heldur áfram á sunnudag og klárast aðfaranótt þriðjudags.
Myndbönd frá NFL.com:
Marshawn Lynch í stuði
Sjálfsmark hjá Green Bay
Seahawks kemst inn í sendingu Rodgers