Lífið

Allt frá ljúfum tónum yfir í grín hjá Jónínu Ara

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Söngkona og lagasmiður Jónína heldur sína fyrstu stóru tónleika hér á landi í Salnum á morgun klukkan 20.
Söngkona og lagasmiður Jónína heldur sína fyrstu stóru tónleika hér á landi í Salnum á morgun klukkan 20. Fréttablaðið/Valli
„Þetta eru fyrstu stóru tónleikarnir sem ég held hér heima og með þessum líka snilldar tónlistarmönnum sem munu deila sviðinu með mér. Þetta verður svakalega gaman, það er engin spurning,“ segir Jónína Aradóttir söngkona um tónleikana í Salnum annað kvöld klukkan 20.

Hún flokkar stíl sinn undir þjóðlagatónlist, popp og rokk með vott af blúsi. „Þetta er allt frá fallegum, ljúfum tónum yfir í léttleika og grín,“ segir hún glaðlega.

Jónína semur bæði texta og tónlist sjálf og kveðst oft sækja innblástur til mikilfenglegra æskustöðva sinna í Öræfum. Síðustu tvö sumur hefur hún starfað við ferðaþjónustu á Jökulsárlóni hjá Ice Lagoon ehf. og lætur ekki strákana eina um að stjórna bátunum heldur er líka siglari sjálf.



Eftir að Jónína vann trúbadorakeppni Rásar 2 árið 2003 ákvað hún að fara í tónlistarnám og nam meðal annars við tónlistarskólann Musicians Institute í Los Angeles í þrjú ár.

Hún fór í sjö vikna tónleikatúr um vesturhluta Bandaríkjanna fyrr á þessu ári og þó þetta séu hennar fyrstu tónleikar í stórum tónleikasal á Íslandi hefur hún komið fram hér á landi, í Danmörku og Bandaríkjunum. Meðal staða sem hún hefur sungið á má nefna House of Blues og Hard Rock Café í Hollywod.

Jónína gaf út smáskífu 2013 í LA með fimm lögum. Eitt þeirra, Into the Water, var valið á safndisk sem kemur út í Bandaríkjunum í lok þessa árs, til styrktar Global Women's Empowerment Network.



Með Jónínu verður sex manna sveit í Salnum. Hana skipa Árni Steingrímsson, gítar, Björn Erlingsson, bassi, Hrafnhildur Ýr Vilbergsdóttir, bakraddir,  Sigfús Óttarsson, trommur, Jósep Gíslason, píanó og Gunnþóra Halla Guðmundsdóttir, selló.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×