Lífið

Poppstjörnur vilja frjálsa Palestínu

Unnsteinn Manuel Stefánsson
Unnsteinn Manuel Stefánsson
Músíkölsku bræðurnir Unnsteinn Manuel og Logi Pedro Stefánssynir úr hljómsveitinni Retro Stefson halda sameiginlega upp á afmæli sín á laugardagskvöldið.

Fyrr sama kvöld kemur eldri bróðirinn til með að halda fyrstu tónleika Uni Stefson, sem er nýtt sólóverkefni úr smiðju Unnsteins, á KEXi hosteli.

Eftir tónleikana munu þeir bræður svo fagna fæðingardögum sínum en hafa afþakkað allar gjafir.

Þeir hafa í staðinn bent áhugasömum á neyðarsöfnun Palestínufélagsins, en bræðurnir hafa ekki farið leynt með stuðning sinn við Palestínu undanfarin misseri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×