Lífið

Með stjörnuglýju í augum

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Hanna Birna Kristjánsdóttir skrapp í frí til New York.
Hanna Birna Kristjánsdóttir skrapp í frí til New York. vísir/daníel
Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, fór í frí til New York í vikunni ásamt eiginmanni sínum.

Þau snæddu á veitingarhúsi í Village og brá þeim heldur betur í brún þegar þau sáu að á næsta borði við þau var leikkonan Sarah Jessica Parker ásamt vinkonu sinni og börnum.

Hanna Birna varð stjörnustjörf og þótt hún hafi reynt að telja í sig kjark þorði hún ekki að biðja um mynd af sér með mestu skvísu New York.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×