Menning

Næturgalinn vísar líka til söngvarans

 "Næturgalinn er eitt ljóðanna í þessum stórfenglega ljóðaflokki Albans Berg,“ segir Hallveig um yfirskrift tónleikanna.
"Næturgalinn er eitt ljóðanna í þessum stórfenglega ljóðaflokki Albans Berg,“ segir Hallveig um yfirskrift tónleikanna. Vísir/Anton
Nei, nei, þú ert ekkert að trufla mig, ég er bara í H&M í Sankti Pétursborg, ekkert stress,“ segir Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona þegar falast er eftir smá símaspjalli um tónleikana Næturgalinn, sem haldnir verða í Norræna húsinu í kvöld. „Svo er ég á leið til New York en ég stoppa heima á milli til að syngja á þessum tónleikum.“



Yfirskrift tónleikanna, sem eru liður í tónleikaröðinni Klassí í Vatnsmýrinni, er Næturgalinn. Titill tónleikanna vísar í söngflokkinn Sieben frühe Lieder eftir Alban Berg sem er á efnisskránni. „Næturgalinn er eitt ljóðanna í þessum stórfenglega ljóðaflokki, sem eru sjö æskuljóð, en tengingin við söngvarann og sönginn er auðvitað líka augljós,“ segir Hallveig.



Árni Heimir Ingólfsson leikur á píanóið og á efnisskránni eru sönglög eftir Wolf, Schumann, Berg, Sibelius, Poulenc og Sondheim.



Hallveig var á fimmtudaginn tilnefnd til Grímuverðlauna fyrir hlutverk sitt í Carmen Íslensku óperunnar og hún segist búast við því að halda áfram að syngja með óperunni í haust. „Svo verð ég með ansi marga tónleika í sumar, fyrir utan það að þurfa að sinna daglegu lífi, auðvitað,“ segir hún hlæjandi.



Tónleikarnir hefjast klukkan 20 í kvöld og verða aðrir tónleikarnir á sjötta starfsári tónleikaraðarinnar Klassík í Vatnsmýrinni, sem er tónleikaröð FÍT-klassískrar deildar FÍH í samvinnu við Norræna húsið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.