Menning

Hugleikur sár og svekktur út í Þjóðleikhúsið

Jakob Bjarnar skrifar
Hugleikur segir Ara hafa fengið blóðnasir, svo ömurlegt var handritið sem hann bauð leikhúsfólki Þjóðleikhússins uppá.
Hugleikur segir Ara hafa fengið blóðnasir, svo ömurlegt var handritið sem hann bauð leikhúsfólki Þjóðleikhússins uppá. Vísir/Valli/Stefán
Stjórnendur Þjóðleikhússins hafa farið í nokkra endurskipulagningu á boðaðri verkefnadagskrá; söngleik eftir Hugleik Dagsson hefur verið frestað um óákveðinn tíma sem og nýju verki eftir Brynhildi Guðjónsdóttur: Fíll. Hugleikur er, samkvæmt yfirlýsingu sem hann birti á Facebook-vegg sínum, langt í frá ánægður með þetta og bregður fyrir sig háði og ýkjustíl: „Þetta var versta handrit sem Þjóðleikhúsið hafði lesið. Það þurfti að lofta út eftir samlestur og Ari fékk blóðnasir þegar hann las fyrsta söngtextann.“

Vefritið Nútíminn ræddi við Ara vegna frestunarinnar en hann segir ástæðuna fyrir frestuninni meðal annars vera að handritið var ekki tilbúið til æfinga ásamt því að leikarar og hljómsveitarmeðlimir voru í öðrum verkefnum.

Selma Björnsdóttir er leikstjórinn en rokksöngleikur Hugleiks, Loki, byggir á goðafræðinni með augum Hugleiks. Á vefsíðu Þjóðleikhússins er greint frá því að Arnmundur Ernst Backman, Hannes Óli Ágústsson, Jóhannes Haukur Jóhannesson, Nanna Kristín Magnúsdóttir, Saga Garðarsdóttir og Stefán Karl Stefánsson séu á meðal leikara.

Ekki tilbúið handrit, að sögn Ara, en Hugleikur bætir í og virðist telja eitt og annað ósagt þar um: „Þetta leikhús kann bara ekki slæmt að meta. Alltaf að heimta að ég setti „sögu“ og „boðskap“ í verkið. Hvað í andskotanum sem það nú er,“ spyr Hugleikur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.