Fótbolti

Fyrrum liðsfélagi Emils til Juventus

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Rômulo spilaði vel með Verona á síðustu leiktíð.
Rômulo spilaði vel með Verona á síðustu leiktíð. Vísir/Getty
Juventus hefur fengið miðjumanninn Rômulo til liðsins.

Rômulo gerði eins árs lánssamning við Juventus, en Ítalíumeistararnir fá forkaupsrétt á honum eftir næsta tímabili, spili hann a.m.k. 60% af keppnisleikjum félagsins á tímabilinu.

Rômulo fæddist í Brasilíu, en er ítalskur ríkisborgari. Hann hefur verið að banka á dyrnar hjá ítalska landsliðinu og var m.a. í æfingahópnum fyrir HM í Brasilíu.

Rômulo hefur komið víða við á ferlinum, en hann hefur m.a. leikið með Cruzeiro í Brasilíu og Fiorentina á Ítalíu.

Hann skoraði sex mörk og lagði upp átta í 32 leikjum með Verona á síðasta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×