Menning

Varð heimskari í augum annarra

Ugla Egilsdóttir skrifar
Ragnheiður á Starbucks.
Ragnheiður á Starbucks.
Ragnheiður Sigurðardóttir framdi gjörning á Starbucks í Brussel sem ber heitið Glossy#2. Gjörningurinn er hluti af seríu um ímynd hins fullkomna kvenlíkama.

„Þótt ég sé ekki tágrönn, eða há í loftinu, eins og módel og ballerínur, þá hef ég samt þá ímynd af líkama mínum. Og á oft bágt með að trúa eigin augum þegar ég lít í spegil,“ segir Ragnheiður.

„Með gjörningnum langaði mig að koma af stað umræðu um þessa fullkomnu hárímynd ljóshærðra kvenna, og hvers vegna hárið hefur þetta yfirbragð heilagleika þegar það er orðið sítt og ljóst.

Ég litaði hárið á mér ljóst fyrir fjórum árum, og fann að fólk tók mér öðruvísi fyrir vikið.

Ég varð skyndilega heimskari í augum annarra, ekki eins sterk, og til í tuskið hvenær sem er og hvar sem er. Þetta viðhorf upplifði ég aldrei sem dökkhærð kona.“

Ragnheiður leggur stund á meistaranám í nútímasviðslistum við Háskólann í Gautaborg. Gjörningurinn er hluti af náminu.

Hér að neðan er myndband af gjörningnum á Starbucks.

Glossy #2 from Ragnheiður Bjarnarson on Vimeo.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×