Bíó og sjónvarp

Frumsýning: Fyrsta sýnishornið úr hinni íslensku Harry og Heimi - Morð eru til alls fyrst!

Skjáskot úr myndinni
Skjáskot úr myndinni
Lífið á Vísi frumsýnir fyrstu stikluna úr kvikmyndinni um Harry og Heimi.

Stórmyndin Harrý og Heimir - Morð eru til alls fyrst! er saga um vináttu, fórnfýsi, tryggð, frosnar bunur og óheyrilega veðurfræði.

Myndin fjallar um þokkadísina Díönu Klein sem leitar ásjár hjá einkaspæjurunum Harrý og Heimi, þar sem faðir hennar, sem er veðurathugunarmaður á Regingnípu, virðist hafa horfið sporlaust. Harrý og Heimir leggja í leiðangur upp á hálendið og tekst að stöðva svívirðilegt samsæri danskra skíðaáhugamanna um að stela íslenska hálendinu og flytja það úr landi.

Aðalhlutverk eru í höndum Karls Ágústs Úlfssonar, Sigurðar SIgurjónssonar, Arnar Árnasonar og Svandísar Dóru Einarsdóttur. Að auki koma við sögu Stefán Karl Stefánsson, Ólafur Darri Ólafsson, Kjartan Guðjónsson og Þröstur Leó. Leikstjórn er í höndum Braga Hinrikssonar.

Myndin verður frumsynd í kvikmyndahúsum um allt land páskana 2014.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.