Enski boltinn

Meiri samkeppni fyrir Björn Bergmann

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Enska C-deildarliðið Wolves hefur gengið frá kaupum á sóknarmanninum Leon Clarke frá Coventry.

Clarke fór fram á sölu fyrr í mánuðinum og hefur hún nú gengið í gegn en það var staðfest á heimasíðu Coventry í dag.

Björn Bergmann Sigurðarson er einnig á mála hjá Wolves en hann spilaði síðast með liðinu skömmu fyrir jól og var síðast í hóp á nýársdag. Björn Bergmann hefur áður verið orðaður við Coventry í enskum miðlum.

Talið er að Leigh Griffiths, annar sóknarmaður hjá Wolves, sé á leið til Celtic í Skotlandi á næstu dögum.


Tengdar fréttir

Björn boðinn í skiptum fyrir leikmann Coventry

Staðarblaðið Coventry Telegraph fullyrðir í dag að enska C-deildarliðið Wolves vilji bjóða Coventry Björn Bergmann Sigurðarson í skiptum fyrir leikmann liðsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×